Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mjög slæmt skyggni á Suðurnesjum
Mánudagur 29. desember 2003 kl. 09:25

Mjög slæmt skyggni á Suðurnesjum

Slæm færð og mjög takmarkað skyggni er nú á Suðurnesjum og gengur umferð mjög hægt. Á Miðnesheiði, milli Keflavíkur og Sandgerðis er mjög slæmt skyggni og sést varla á milli bíla og hafa bílar verið um 40 mínútur að fara þarna á milli, leið sem venjulega tekur um 10 mínútur að fara. Ekki hefur safnast mikill snjór fyrir á götum. Að sögn lögreglunnar í Keflavík hefur ekki verið tilkynnt um önnur slys en það sem varð á Reykjanesbraut í morgun, rétt innan við Kaffitárshúsið.
Veðurstofan spáir vaxandi suðaustanátt, víða 15-20 m/s og snjókoma á vestanverðu landinu undir hádegi, en slydda eða rigning við ströndina síðdegis. Hægviðri og skýjað austantil, en suðaustan 13-18 með snjókomu og skafrenning í kvöld og nótt, en lægir þá vestanlands. Dregur úr vindi austanlands á morgun, en annars vestlæg átt, víða 5-10 og él eða slydduél á morgun. Hægt hlýnandi veður og hiti 0 til 5 stig sunnan- og vestanlands síðdegis, en dregur úr frosti í öðrum landshlutum í dag. Hiti 0 til 5 stig á morgun, en vægt frost inn til landsins.

VF-ljósmynd/JKK.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024