Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Mistök hljóta að hafa átt sér stað
Við Gunnuhver á Reykjanesi.
Föstudagur 29. maí 2015 kl. 14:14

Mistök hljóta að hafa átt sér stað

– við úthlutun fjármuna til verkefna á ferðamannastöðum

Á fundi stjórnar Reykjanes jarðvangs sem að fram fór í dag var fjallað um úthlutun fjármuna til brýnna verkefna á ferðamannastöðum frá 26. maí sl. Eftirfarandi var bókað:

„Stjórn Reykjanes jarðvangs fagnar auknum framlögum til uppbyggingar ferðamannastaða á Íslandi. Stjórnin gerir hins vegar athugasemd við að aðeins sé úthlutað til ferðamannastaða í eigu og umsjón ríkisins. Sérstaka athygli vekur að engin framlög eru til verkefna á Reykjanesi en Reykjanesskagi er þriðji fjölsóttasti landshlutinn af ferðamönnum. Reykjanesfólkvangur er á rauðum lista Umhverfisstofnunar og landssvæðið að mestu í eigu ríkisins. Verkefni þaðan ættu því að uppfylla allar forsendur sem settar voru fyrir úthlutuninni. Stjórn Reykjanes jarðvangs ályktar að mistök hljóti að hafa átt sér stað við úthlutunina sem verði leiðrétt strax. Stjórnin skorar jafnframt á ráðherra ferðamála við að bæta úr þessu þegar í stað og býður fram aðstoð sína“.

Public deli
Public deli