Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

„Missti“ fíkniefni úr leggöngum
Föstudagur 1. júní 2012 kl. 17:02

„Missti“ fíkniefni úr leggöngum

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Tæplega þrítug kona situr í gæsluvarðhaldi eftir að hún reyndi að smygla nær hálfu kílói af fíkniefnum í leggöngum sínum til landsins. Konan, sem er af erlendu bergi brotin, var að koma frá Kaupmannahöfn og vaknaði grunur um að hún væri með fíkniefni í fórum sínum við hefðbundið eftirlit tollgæslu. Þegar farið var að ræða nánar við hana „missti“ hún á fimmta hundrað grömm af extacy-dufti niður úr leggöngum sínum.

Lögreglan á Suðurnesjum var þá kvödd í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þar sem konan hafði „misst“ efnin og var hún handtekin og færð á lögreglustöð. Hún var skömmu síðar úrskurðuð í gæsluvarðhald. Rannsókn lögreglu er á lokastigi.