Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Missti fíkniefni á gólf lögreglustöðvarinnar
Þriðjudagur 6. janúar 2015 kl. 07:00

Missti fíkniefni á gólf lögreglustöðvarinnar

„Eigandinn“ handtekinn skömmu síðar.

Lögreglumenn á Suðurnesjum fundu um helgina poka með hvítu efni í anddyri lögreglustöðvarinnar í Keflavík. Það tók þá ekki langan tíma að hafa upp á „eigandanum“ sem var karlmaður á þrítugsaldri, sem staddur hafði verið í anddyri stöðvarinnar skömmu áður. Hann tjáði lögreglu að um væri að ræða fimm grömm af amfetamíni, sem hann hefði geymt í buxnastreng sínum að framan eða í nærbuxunum. Hefði hann ekki tekið eftir þegar pokinn datt í gólfið. Hann var handtekinn.
 
Ástæða fyrir veru mannsins á lögreglustöð var sú að hann hafði verið farþegi í bifreið sem lögregla stöðvaði vegna gruns um fíkniefnaakstur. Ökumaðurinn, rúmlega tvítug kona, reyndist hafa neytt amfetamíns, kókaíns, metamfetamíns og ópíumblandaðs efnis, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu. Að auki var hún eftirlýst vegna afplánunar vararefsingar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024