Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Mismunandi vörumerki geta tekið höndum saman og unnið í sama rými
Föstudagur 6. janúar 2023 kl. 16:35

Mismunandi vörumerki geta tekið höndum saman og unnið í sama rými

Isavia hefur sent frá sér tilkynningu og telur rétt að vekja athygli á eftirfarandi vegna umfjöllunar um útboð á veitingaþjónustu í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Þar segir að útboðið sem hér um ræðir tekur til þriggja veitingarýma í flugstöðinni sem eru boðin út sem ein heild. Útboðið er á lokastigi.

Þar er lögð megináhersla á fjölbreytt framboð fyrir farþega í veitingaþjónustu. Það þýðir að mismunandi vörumerki geta tekið höndum saman og unnið í sama rými til að uppfylla þær kröfur. Það hefur verið gert í fyrri útboðsniðurstöðum og er alþekkt fyrirkomulag á alþjóðaflugvöllum um allan heim.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Snemma á síðasta ári héldum við vel sóttan kynningarfund um væntanleg útboð á verslunar- og veitingarými á Keflavíkurflugvelli. Tilgangur fundarins var einnig að leiða saman aðila sem gætu unnið saman að útboðum. Síðan hafa verið haldin útboð sem öll hafi gengið vel og leitt til niðurstöðu sem mun auka úrval á mat, drykk og verslunartækifærum á Keflavíkurflugvelli,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga hjá Isavia, í tilkynningunni.

Isavia er skylt að bjóða út alla verslunar- og veitingaþjónustu í flugstöðinni á nokkurra ára fresti á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og eru þau útboð opin öllum. Það hefur legið fyrir frá upphafi hverjar kröfurnar væru og kom það fram á kynningarfundi fyrir tæpu ári og í öllum útboðsgögnum.

Isavia hvetur sem fyrr alla áhugasama rekstraraðila til að kynna sér öll okkar útboð sem verða síðar á þessu ári og endilega taka þátt.