HSS
HSS

Fréttir

Mismunandi förgun á snjó í Grindavík og Reykjanesbæ
Snjórinn er losaður í höfnina í Grindavík í tonnavís á hverjum degi.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 13. janúar 2023 kl. 06:35

Mismunandi förgun á snjó í Grindavík og Reykjanesbæ

„Ég sé ekki muninn á því að snjónum sé sturtað í höfnina, eða að hann bráðni og fari í sjóinn í gegnum niðurföll bæjarins,“ segir Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

Grindvíkingar og Suðurnesjafólk yfir höfuð, hafa ekki farið varhluta af snjómagninu síðan stuttu fyrir jól og hafa snjómoksturstæki verið á fullu nánast alla daga síðan vertíðin hófst. Það er munur á því hvernig snjónum er fargað í Grindavík og Reykjanesbæ, á fyrrnefnda staðnum er snjónum sturtað í höfnina en í Reykjanesbæ rísa stórir snjóskaflar á malarvellinum og fleiri stöðum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ekki virðast aðilar sammála um hvort aðferð Grindvíkinganna sé lögleg, þ.e. að sturta snjó í hafið en sagan á götunni er að Umhverfisstofnun hafi lagt bann við slíku.

Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja, kannaðist hins vegar ekki við slíkt. Hann sagðist ekki sjá muninn á því að snjó sé sturtað í hafið eða að hann bráðni og renni í niðurföll og fari þaðan út í sjó.

Í Reykjanesbæ hefur snjó verið safnað upp á opnum svæðum. Hér er snjónum hrúgað upp á gamla malarvellinum í Keflavík.

Nóg er að gera hjá verktökum í að moka snjó af gatnakerfinu á Suðurnesjum.