Sjómannakveðjur 1
Sjómannakveðjur 1

Fréttir

Misjafnt verð í flugvélum
Föstudagur 3. ágúst 2012 kl. 12:15

Misjafnt verð í flugvélum

Samkvæmt könnun sem vefsíðan túsristi.is gerði er ódýrast að kaupa sér samlokur hjá Iceland Express flugfélaginu. Samlokur eru áberandi á matseðlum flugfélaganna og hjá Iceland Express kosta þær nærri því helmingi minna en brauðið hjá Norwegian, þar sem þær eru dýrastar.

Langflestir farþegar versla sér einhverjar veitingar um borð. Þetta sýna niðurstöður lesendakönnunar Túrista frá því vetur sem nærri eitt þúsund svör fengust í. Þar kom fram að aðeins 9 % kaupa aldrei mat né drykki í flugum. Helmingurinn sagðist hins vegar alltaf eða oftast kaupa eitthvað.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fríir drykkir á undanhaldi

Það eru sennilega fleiri sem kaupa sér eitthvað að drekka í háloftunum en að borða. Hjá Icelandair þarf ekki að borga fyrir óáfenga drykki og hjá SAS er kaffi og te frítt. Hjá hinum félögunum þarf að greiða fyrir allt. Kaffibollinn hjá easyJet, Iceland Express og WOW air kostar til að mynda um fjögur hundruð krónur. Hjá Norwegian tæpar fimm hundruð.

Börn fá bara frítt hjá Icelandair

Barnabox með léttum mat og snarli fyrir þau yngstu eru í boði hjá Iceland Express, easyJet og Icelandair. Það síðastnefnda rukkar börn yngri en 11 ára ekki fyrir boxið en til samanburðar kostar barnabox Iceland Express 590 krónur og 750 hjá easyJet.  Máltíð fyrir barnafjölskyldu verður því mun ódýrari hjá Icelandair en hjá hinum félögunum. Kostar hún rúmar tvö þúsund krónur sem er þrefalt lægra en hjá SAS og Norwegian. Máltíð fyrir einstakling kostar því langminnst hjá Icelandair þar sem aðeins þarf að greiða fyrir samlokuna en ekki drykkina. Munar 480 krónum á Icelandair og Iceland Express sem er næst ódýrasti kosturinn.

Túristi kannaði verðlag á veitingum hjá þeim sex félögum sem halda uppi millilandaflugi héðan allt árið. Þar var stuðst við upplýsingar af heimasíðum félaganna og miðað við verð á ódýrasta farrými þegar það á við. Ekkert mat er lagt á gæði veitinganna.