Minnsti banki á Suðurnesjum opnaður í Vogum

Geirmundur Kristinsson sagði að þó Sparisjóðurinn héti Sparisjóðurinn í Keflavík væri hann ekkert annað en Sparisjóður Suðurnesja og það væri hlutverk hans að þjóna íbúum á svæðinu. Opnun afgreiðslu í Vogum sem verður opin mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 15-18 er tilkomin í kjölfar skoðanakönnunar sem Sparisjóðurinn gerði meðal fólks í sveitarfélaginu.
Sparisjóðurinn mun sinna öllum fjármálaþörfum viðskiptavina og verður þjónustufulltrúi frá honum til þjónustu reiðubúinn. Hraðbankii Sparisjóðsins hefur verið fluttur úr íþróttahúsinu yfir í verslun Esso og er opin á opnunartíma verslunarinnar. Við formlega opnun í gær afhenti Geirmundur Kristinsson, Ungmennafélaginu Þrótti og Björgunarsveitinni Skyggni 200 þús. kr. hvoru félagi, í tilefni þessarar opnunar.