Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Minnismerki um loftvarnir Íslands flutt í skjól á Keflavíkurflugvelli
Föstudagur 30. nóvember 2007 kl. 14:51

Minnismerki um loftvarnir Íslands flutt í skjól á Keflavíkurflugvelli

Starfsmenn Flugmálastjórnarinnar Keflavíkurflugvelli fluttu bandaríska orrustuþotu af stalli sínum í fyrrum varnarliðsbænum, sem nú nefnist Vallarheiði, í skýli á Keflavíkurflugvelli s.l. miðvikudag.

Þotan er af gerðinni F-4 Phantom sem varnarliðið notaði til loftvarna á árunum 1973–1985 og var komið fyrir sem minnismerki fyrir allmörgum árum. Þotur af þessari gerð flugu reglulega í veg fyrir sovéskar herflugvélar sem lögðu leið sína inn á loftvarnasvæði landsins. Byggðasafni Reykjanesbæjar var falin þotan til varðveislu við brottför varnarliðsins sem vísir að væntanlegu minjasafni um starfsemina á Keflavíkurflugvelli. Lá hún undir skemmdum vegna veðrunar og var flutt með aðstoð kranabifreiðar til geymslu í einu þotuflugskýlanna á flugvellinum þar til viðeigandi húsnæði er fundið fyrir væntanlegt safn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024