Minnislaus körfuknattleiksmaður fluttur á sjúkrahús
Leikmaður Keflavíkur var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík eftir samstuð tveggja leikmanna í leik Keflavíkur og Tindastóls í körfuknattleik nú í kvöld. Leikurinn fór fram í Keflavík. Að sögn lögreglunnar í Keflavík ber leikmaðurinn við minnisleysi. Hann mun hafa fengið högg á háls og sagðist finna til í öxlum.