Fréttir

Minningarstund fyrir Ölmu Þöll í Fjölbrautaskólanum í kvöld
Fimmtudagur 19. janúar 2017 kl. 13:43

Minningarstund fyrir Ölmu Þöll í Fjölbrautaskólanum í kvöld

Minningarstund verður haldin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í kvöld klukkan 20:00 vegna andláts Ölmu Þallar Ólafsdóttur sem lést í bílslysi á Grindarvíkurvegi þann 12. janúar síðastliðinn.

Á Facebooksíðu nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja segir „Elsku FS-ingar, við misstum unga fallega sál frá okkur á dögunum og þess vegna langar okkur að halda minningarathöfn uppí skóla fyrir Ölmu Þöll.“ Meðfylgjandi er svo bankareikningur sem leggja má inn á til að sýna fjölskyldu Ölmu stuðning:

Public deli
Public deli

Kt. 111167-5409
Reikn nr. 0143-05-060699