Minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa á sunnudag
Allar slysavarnadeildir og björgunarsveitir Suðurnesja standa fyrir minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa næsta sunnudagskvöld kl. 20:00 í Ytri Njarðvíkurkirkju og mun séra Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir stjórna athöfninni.
Viðburðurinn er í samvinnu við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Samgöngustofu og Slysavarnafélagið Landsbjörg og eru einingar félagsins víða um land að skipuleggja minningardag í sinni heimabyggð.
Einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum sem koma að athöfninni eru:
Slysavarnadeildin Dagbjörg
Slysavarnadeildin Una í Garði
Slysavarnadeildin Þórkatla
Björgunarsveitin Suðurnes
Björgunarsveitin Ægir
Björgunarsveitin Skyggnir
Björgunarsveitin Sigurvon
Björgunarsveitin Þorbjörn