Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Minnihlutinn óskar eftir aukafundi í bæjarstjórn Reykjanesbæjar vegna Hitaveitusölu
Föstudagur 29. júní 2007 kl. 17:15

Minnihlutinn óskar eftir aukafundi í bæjarstjórn Reykjanesbæjar vegna Hitaveitusölu

Minnihlutinn í bæjarstjórn Reykajnesbæjar ætlar að óska eftir  aukafundi í bæjarstjórn strax eftir helgi til að ræða sölu á hlut ríkisins til Geysis Green Energy. Minnihlutinn vill að Reykjanesbær nýti forkaupsrétt sinn að hlutabréfum ríkisins í ljósi þess að nú er verið að bjóða hærra verð fyrir hluti í fyrir Hitaveitu Suðurnesja hf. en tilboð Geysis Green Energy hljóðar uppá.
Bent er á að hagnast megi um hundruð milljóna við það eitt að nýta forkaupsréttinn og selja bréfin strax aftur, m.v. það kaupgengi sem nú er í boði fyrir hluti í HS.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024