HSS
HSS

Fréttir

Minniháttar slagsmál og akstur undir áhrifum
Sunnudagur 12. júlí 2009 kl. 10:32

Minniháttar slagsmál og akstur undir áhrifum

Lögregla þurfti í tvígang að hafa afskipti af fólki vegna slagsmála á Hafnargötu í Keflavík í nótt. Einn var handtekinn í kjölfarið fyrir að fara ekki eftir fyrirmælum lögreglu.

Þá var einn ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum amfetamíns.

Annars hefur helgin verið nokkuð róleg hjá lögreglu. Þó vildi það til á aðfararnótt laugardags að lögregla handtók mjög ölvaðan mann í Keflavík. Hafði hann valdið íbúum ónæði auk þess að hafa hægðir í húsagarði.

VF-mynd úr safni

Bílakjarninn
Bílakjarninn