Milt veður í dag
Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri norðlægri átt, en norðaustan 8-13 m/s norðvestan- og vestanlands síðdegis. Skýjað víðast hvar og dálítil væta norðantil á landinu og suðaustanlands, en slydda norðvestanlands í nótt. Norðaustan 10-15 á morgun, en hægari suðvestantil. Snjókoma eða slydda norðantil, slydda eða rigning austan- og suðaustanlands, en en skýjað með köflum suðvestantil. Hiti 4 til 11 stig að deginum og mildast sunnan- og suðaustanlands, en fer heldur kólnandi norðantil á morgun.