Milljónatjón unnið á hraðbanka á Vallarheiði
Í nótt var reynt að brjótast inn í hraðbanka frá Sparisjóðinum í Keflavík, sem staðsettur er í þjónustukjarna Lang-bests og Samkaupa á Vallarheiðini.
Þjófurinn eða þjófarnir komust ekki inn í hraðbankann en skemmdu hann það mikið við verknaðinn að hann er talinn ónýtur eftir.
Svona hraðbanki kostar á bilinu 5 - 6 milljónir króna. Lögreglan biður alla sem gætu gefið einhverjar upplýsingar varðandi málið að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum.
Ljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson