Milljón farþegar um FLE í ár
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 11% í júlí miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 236 þúsund farþegum árið 2004 í rúma 261 þúsund farþega nú. Þetta kemur fram á heimasíðu Leifsstöðvar.
Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur rúmum 8% milli ára og farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgaði um tæp 26%.
Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um 10% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2004, eða úr tæplega 946 þúsund farþegum í tæpa 1.041 þúsund farþega.