Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Milljarður rís í Hljómahöllinni
Þriðjudagur 14. febrúar 2017 kl. 06:00

Milljarður rís í Hljómahöllinni

- Heiðra minningu Birnu Brjánsdóttur

Dansbyltingin Milljarður rís er haldin á vegum UN Women víða um heim. Næsta föstudag, 17. febrúar, verður dansað gegn kynbundnu ofbeldi víða um land. Á Suðurnesjum verður dansað í Hljómahöllinni frá klukkan 12 til 13. Í ár verður minning Birnu Brjánsdóttur heiðruð.

„Tökum höndum saman og berjumst gegn kynbundnu ofbeldi með væntumþykju, hlýju og dansi,“ segir í tilkynningu frá UN Women. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem konur þurfa ekki að óttast ofbeldi og áreiti fyrir það eitt að vera konur.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í kjölfar hvarfs Birnu Brjánsdóttur hafa konur hér á landi stigið fram og lýst þeim veruleika sem þær búa við. Þeim ótta og óöryggi sem þær finna fyrir á götum úti og hvernig þær axla ábyrgð á mögulegu ofbeldi með því að forðast augnsamband, velja ákveðnar götur fram yfir aðrar, halda á lykli milli fingra sinna í annarri hendi og símanum í hinni með 112 á hraðvali er þær ferðast milli staða að kvöld- og næturlagi. Þessi veruleiki er þó síður en svo aðeins bundinn við Reykjavík. Ofbeldi eða ótti við að verða fyrir því er hluti af daglegu lífi kvenna víða um heim.

Hátt í 13 þúsund manns hafa komið saman undanfarin fimm ár og dansað víða um landið. Atli Már mun sjá til þess að allir fari dansandi inn í helgina. 

UN Women skorar á  starfsmannahópa að fjölmenna í Hljómahöllina og dansa saman af krafti með gleði og hlýju að leiðarljósi fyrir Birnu Brjánsdóttur sem kvaddi þennan heim of snemma. Hér er hægt að skrá sig.

Staðreyndir um kynbundið ofbeldi

Ein af hverjum þremur konum í heiminum hefur þurft að þola ofbeldi. Ein af hverjum fimm þurft að þola kynferðislegt ofbeldi.

99,3 prósent kvenna og stúlkna á þéttbýlissvæðum í Egyptalandi hafa upplifað kynferðislega áreitni og um helmingur þeirra verður fyrir áreitni daglega.

95 prósent kvenna í Nýju Delí á Indlandi finnst þær ekki öruggar á götum úti. 73 prósent þessara kvenna upplifa ekki einu sinni öryggi í sínu nánasta umhverfi.

Um 70 prósent íslenskra kvenna upplifa sig óöruggar í miðborg Reykjavíkur að næturlagi.