Mikil hættumerki um yfirvofandi eldgos
„Mér finnst ekki ólíklegt að það sé kvika að safnast saman undir Svartsengi, eða þess vegna undir Sundhnjúkagígaröðinni sem liggur til norðausturs frá Grindavík þar sem að það eru búnir að vera viðvarandi skjálftar í langan tíma,“ segir Ólafur G. Flóvenz, jarðeðlisfræðingur og fyrrum forstjóri Íslenskrar orkurannsókna (ÍSOR), en hann telur þetta vera mikil hættumerki um yfirvofandi eldgos. Frá þessu er greint á mbl.is í kvöld.
Í samtali við mbl.is segir hann að ef eldgos myndi hefjast við Svartsengi þá yrðu Bláa lónið og orkuverið í Svartsengi í mikilli hættu vegna hraunrennslis. Hann segist þó hafa mestar áhyggjur af Grindavík sem hann segir standa á hrauni sem rann úr Sundhnjúkagígum fyrir um tvö þúsund árum, en syðstu gígarnir eru nánast við ystu mörkin á byggðinni í Grindavík.
„Það segir manni bara það að það hlýtur að vera mikil hætta á eldgosi í kringum Grindavík, í Svartsengi og í Eldvörpum við núverandi aðstæður.“