Miklar skemmdir í Sandgerði
Verið er að rífa þak á fiskverkunarbyggingu Erlings Jónssonar við Strandgötu í Sandgerði, en tilkynnt var um eld í byggingunni klukkan 1:41 í nótt. Þegar lögregla og slökkvilið kom á staðinn lagði reyk frá þaki byggingarinnar. Að sögn Reynis Sveinssonar slökkviliðsstjóra í Sandgerði þurfti að rýma nokkur íbúðarhús í nágrenni við eldsstaðinn vegna reyks sem lagði yfir svæðið. Verbúð sem er við hlið fiskverkunarhússins var rýmt og var fólk flutt í íþróttahúsið og fræðasetrið. Frystigeymslur fiskverkunarhússins eru fullar og að sögn Reynis eru þar um 1000 tonn af hráefni frá Skinnfiski í Sandgerði. Ekki er vitað hvort hráefnið sé ónýtt en verið er að rífa þak hússins þar sem frystigeymslurnar eru til að slökkva glóð sem þar virðist vera.
Myndasyrpa af brunastörfum.
VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson: Slökkviliðsmenn að störfum í Sandgerði í morgun á þaki hússins.
Myndasyrpa af brunastörfum.
VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson: Slökkviliðsmenn að störfum í Sandgerði í morgun á þaki hússins.