Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 27. júlí 2000 kl. 16:01

Miklar framkvæmdir fyrirhugaðar í Sandgerði

Miklar framkvæmdir eru nú hafnar í Sandgerðisbæ og enn meira er í bígerð, en hafist hefur verið handa við aðalskipulag bæjarins sem samþykkt var af umhverfisráðherra 5. ágúst á síðasta ári. Deiliskipulag hefur verið gert fyrir hafnarsvæðið, miðbæinn og tvær nýjar íbúðagötur; Miðtún og Oddnýjarbraut. Til stendur byggð verði fimm parhús fyrir ungt fólk við Miðtún og verða framkvæmdir hafnar í næsta mánuði við fjórar íbúðir. „Við höfum verið að missa unga fólkið úr bænum vegna skorts á húsnæði fyrir það, en síðan kemur það aftur um þrítugt. Við verðum að geta boðið unga fólkinu okkar upp á almennilegt húsnæði og ætlum nú að bæta úr því. Varðandi alla þjónustu til handa ungu fólki stöndum við vel að vígi og stefnt er að því að auka þjónusturými á leikskólanum og við grunnskólann“, sagði Sigurður Valur, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar. Í ágúst hefjast síðan framkvæmdir við 8 íbúðir fyrir aldraða við Suðurgötu, með því að byggja við þær íbúðir sem þar eru fyrir, en á staðnum er góð aðstaða og þjónusturými fyrir eldri bæjarbúa. Framkvæmdin er á vegum Búmanna og er ætlunin að skila íbúðunum fullbúnum í ágúst 2001. Óskað er eftir að þeir sem nú þegar hafa látið skrá sig á biðlista, staðfesti ákvörðun sína og þeir sem ekki hafa skráð sig eru boðnir velkomnir á skrifstofu bæjarins. Teikningar hafa verið gerðar að 340m2 stækkun á grunnskólanum og 70m2 stækkun á íþróttahúsinu og hefjast þær framkvæmdir á næsta ári. Einnig hefur verið teiknuð stækkun á leikskólanum, þar sem einni heilsdagsvistunardeild verður bætt við og hefjast þær framkvæmdir einnig á næsta ári. Fyrir eru 80 pláss í hálfs dags vistun á leikskólanum, en með stækkuninni er gert ráð fyrir 20 heilsdags plássum. Framkvæmdum er nýlokið við lóð leikskólans, þar sem öllum leiktækjum hefur verið komið fyrir á framtíðarstað. Í miðbæ Sandgerðis er gert ráð fyrir þremur byggingum fyrir stjórnsýsluhús, verslunar- og skrifstofu hús og nýrri verslun Sparkaups. Byggingaframkvæmdir hófust í vikunni við verslun Sparkaups, sem er fyrsta húsið í þessum kjarna sem er fyrirhugaður á miðbæjarsvæðinu, en bygging stjórnsýsluhússins er ekki á dagskrá a.m.k. næstu þrjú árin. Auk ofantalinna framkvæmda hjá Sandgerðisbæ, eru tvö einbýlishús í byggingu við Miðtún og verið er að fara af stað með byggingu parhúsa við Stafnesveg, en þar er einnig einbýlishús í smíðum. Einnig hefur verið gefið leyfi fyrir fjórar íbúðir við Vallargötu og íbúðir við Suðurgötu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn