Miklar fjárfestingar framundan hjá Isavia
Umtalsverð aukning varð á umsvifum Isavia á síðastliðnu ári. Isavia annast rekstur Keflavíkurflugvallar auk allra annarra flugvalla á landinu, ásamt flugleiðsöguþjónustu í landinu og er leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu. Félagið heldur aðalfund sinn í dag.
Tekjur félagsins jukust um 11,4% og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 3,8 milljarðar króna eða um 20% af tekjum. Hagnaður eftir skatta var um 738 milljónir króna.
Mikil aukning hefur orðið á fjölda farþega um Keflavíkurflugvöll en aukningin sem orðið hefur frá botnári efnahagskreppunnar hér á landi, 2009 nemur samtals um 44%. Framkvæmdir eru hafnar á Keflavíkurflugvelli til þess að takast á við þessa miklu farþegaaukningu.
Framundan eru einnig miklar fjárfestingar í innviðum flugvallakerfisins svo tryggja megi þjónustu við flugrekstraraðila og sívaxandi ferðamannastraum.