Bygg
Bygg

Fréttir

Mikilvægt er að fylgjast náið með virkninni í suðurhlíðum Fagradalsfjalls
Gervitunglamynd sem barst í morgun.
Miðvikudagur 10. mars 2021 kl. 17:01

Mikilvægt er að fylgjast náið með virkninni í suðurhlíðum Fagradalsfjalls

Úrvinnsla á gervihnattamyndum sem bárust í morgun og nýjustu GPS mælingum, staðfesta að kvikusöfnun er áfram skorðuð við suðurenda kvikugangsins sem nær frá Keili að Fagradalsfjalli. Sá staður er áfram talinn vera líklegasti staðurinn komi til eldgoss, segir á Facebook-síðu Veðurstofu Íslands.

GPS mælingar benda til þess að hægt hafa örlítið á kvikuflæði, en óvissan í þeim mælingum er þó talsverð þar sem kvikan liggur mjög grunnt í jarðskorpunni (á um 1 km dýpi). Það er þó mat vísindaráðs að mikilvægt er að fylgjast náið með virkninni í suðurhlíðum Fagradalsfjalls til að sjá hvort að hún er vísbending um að kvikugangurinn sé að stækka til suðurs.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

https://www.vedur.is/um-vi/frettir/skjalfti-m57-a-reykjanesi