Mikilvægt að sveitarfélögin fylgi stafrænni þróun
Ný ábendingagátt Reykjanesbæjar hentar öllum snjalltækjum.
„Mikilvægt er að taka öllum ábendingum fagnandi, hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar og horfa á þær sem tækifæri til úrbóta. Reykjanesbær hefur unnið hörðum höndum að því seinustu mánuði við að finna leiðir til þess að einfalda ábendingagáttina hjá sveitarfélaginu og er því ánægjulegt að þetta skref hafi verið tekið. Tekið er fagnandi á móti öllum ábendingum,“ segir Aðalheiður J. Óskarsdóttir, gæðastjóri Reykjanesbæjar en nýlega var opnuð stafræn ábendingagátt á vef Reykjanesbæjar.
Um er að ræða eina einingu í gæðakerfi sveitarfélagsins sem hefur verið í innleiðingu seinustu ár. Gæðakerfi Reykjanesbæjar er CCQ frá Origo. Í frétt frá Reykjanesbæ kemur fram að ein af frumskyldum sveitarfélaga sé að veita þjónustu við íbúana og í nútímasamfélagi hefur framsetning á þjónustunni breyst töluvert. Stafræn þróun hefur verið hröð seinustu ár og hafa stofnanir og fyrirtæki þurft að bregðast hratt við og eru sveitarfélög þar engin undantekning. Þar á meðal má nefna framsetningu á því hvernig íbúar og aðrir einstaklingar geta sent inn ábendingu. Íbúar verða að geta sent inn ábendingar um það sem betur má fara og hrósað því sem vel gengur og þannig haft áhrif á samfélagið sitt. Það er þó ekki aðeins mikilvægt að vera með gott aðgengi að ábendingagátt, öflug og örugg úrvinnsla er einnig mikilvæg.
Ábendingagáttin er notendavænni en fyrri lausnir og auðveldari úrlausnar fyrir starfsfólk. Ný ábendingagátt hentar öllum snjalltækjum og er því ekkert mál að grípa símann og senda ábendingu með einföldum hætti. Hægt er að senda myndir með ábendingunni og möguleiki er að senda staðsetningu á korti ef það á við.
Öflugt bakendakerfi gerir það að verkum að starfsfólk getur brugðist hratt við ábendingum og komið þeim í réttan farveg. Kerfið sýnir einnig hvar ábendingin er stödd innan stjórnsýslunnar sem gerir eftirfylgni markvissari en áður en mikilvægt er að gott gagnsæi sé í stjórnsýslunni.
„Með virkri ábendingagátt er Reykjanesbær að bjóða upp á virkt samtal um málefni líðandi stundar og örugga úrvinnslu á þeim. „Reykjanesbær er að sýna frábært fordæmi með því hugarfari starfsfólks að bjóða ábendingar velkomnar,“ segir Maria Hedman, vörustjóri CCQ hjá Origo.