Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Mikilvægt að Suðurnesjalína 2 verði lögð sem fyrst
Miðvikudagur 26. október 2016 kl. 06:00

Mikilvægt að Suðurnesjalína 2 verði lögð sem fyrst

Mikilvægt er að Suðurnesjalína 2 verði lögð sem fyrst og Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, haldinn 14.-15. okt. 2016, skorar á iðnaðar- og viðskiptaráðherra að beita sér fyrir öryggi í raforkumálum á Suðurnesjum.

Flutningsgeta núverandi línu er fullnýtt og hamlar núverandi kerfi uppbyggingu á svæðinu. Suðurnesjalína 1 er eina tenging Reykjanesskagans við meginflutningskerfi Landsnets og hafa bilanir á henni valdið straumleysi. Það er ekki ásættanlegt m.a. með tilliti til þess að eini alþjóðaflugvöllur landsins er staðsettur á Suðurnesjum. Mikið álag veldur enn frekari hættu á truflunum á raforkuflutningum, sem og getur valdið tjóni hjá notendum. Það er brýnt hagsmunamál íbúa og atvinnulífs á Reykjanesi að flutningskerfi raforku verði styrkt sem fyrst, segir í ályktun frá fundinum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024