Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mikilvægt að gefa börnum færi á návist við dýrin
Sunnudagur 25. apríl 2010 kl. 14:20

Mikilvægt að gefa börnum færi á návist við dýrin

„Það er mikilvægt að gefa börnum færi á návist við dýrin, sérlega ungviðið. Þetta er einn að þeim þáttum sem mun framvegis gera lífið litríkara hér í Reykjanesbæ“ segir Árni Sigfússon bæjarstjóri í tilefni af því að litlum húsdýragarði hefur verið komið upp í Víkingaheimum í Innri Njarðvík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Kálfar, lömb, kiðlingar, landnámshænur, geitur og kanínur eru komnar í garðinn. Garðurinn opnaði í dag, laugardag og verður opinn framvegis frá sumarbyrjun og fram á haust. Börnin kunnu strax vel að meta ungviði landnámsdýranna eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru á barnahátíð í Reykjanesbæ.




Víkurfréttamyndir: Sölvi Logason