Mikilvægt að börn með einhverfu viti hvað stendur til
Katla Bjarnadóttir, starfsmaður hjá Skólamat í mötuneyti Holtaskóla, hlaut Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar 2016 en verðlaunin voru afhent í vikunni. Í umsögn með verðlaununum segir að Katla hafi sýnt einstaka hugkvæmni í störfum sínum sem hafi leitt til bætts árangurs og líðan nemenda. Þá sagði í umsögninni að hún hafi að eigin frumkvæði leitað nýrra leiða til að mæta sérþörfum nemenda þegar kemur að mataræði og eru áhrif af störfum hennar sögð ná langt út fyrir veggi skólans. Katla hefur lagt sérstaka áherslu á að hjálpa nemanda með einhverfu sem ekki hefur haft mikla lyst á matnum. „Ég settist alltaf með nemandanum í frímínútum klukkan hálf tíu og við ræddum um hvað yrði í matinn þann daginn. Ég útskýrði það og bauðst til að taka grænmeti sem nemandinn borðar ekki úr pasta og súpum. Þetta hjálpaði til,“ segir Katla.
Katla hefur unnið í mötuneyti Holtaskóla í tvo ár en vann áður í 15 til 16 ár við gangavörslu og sem stuðningsfulltrúi í skólanum. Hún segir skólann virkilega góðan vinnustað. Í gegnum störf sín hefur hún öðlast dýrmæta reynslu við að starfa með börnum með einhverfu. „Þau þurfa að vita fyrirfram hvað stendur til. Það er sama hvort það er hvað verði í matinn eða hvort það sé íþróttatími seinna um daginn. Ef maður lætur þau vita og undirbýr þau, þá gengur betur.“
Alls voru tuttugu og fimm verkefni tilnefnd til Hvatningarverðlaunanna. Þau eru ætluð kennurum, kennarahópum og starfsmönnum í leikskólum, grunnskólum og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þau eru veitt fyrir starf eða verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Katla segir verðlaunin hafa komið sér skemmtilega á óvart. Hún hefur lesið bréf frá foreldrinu sem sendi inn tilnefninguna og segir það hafa verið góða tilfinningu.
Holtaskóli hefur verið vinnustaður Kötlu í tæp tuttugu ár. Hún starfar fyrir Skólmat í mötuneyti skólans en var áður stuðningsfulltrúi og gangavörður.