Mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna
Næstu dagar ráða því hvernig starfsemi björgunarsveitarinnar í þínu bæjarfélagi verður háttað á næsta ári. Í hönd fer mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna þegar flugeldamarkaðirnir opna á morgun. Björgunarsveitirnar eru sjálfboðaliðasamtök sem eru reknar fyrir söfnunarfé. Þar skiptir flugeldasalan stærstu máli.
Í Reykjanesbæ er stærsta björgunarsveitin á Suðurnesjum, Björgunarsveitin Suðurnes. Þar er Kári Viðar Rúnarsson formaður. Hann var ásamt sínu fólki að stækka eina sölustað björgunarsveitarinnar í Reykjanesbæ að Holtsgötu 51. Þegar Víkurfréttir tóku hús á Kára og félögum í Björgunarsveitinni Suðurnes hafði björgunarsveitarfólkið verið að fá þau tíðindi að umsókn sveitarinnar um húsnæði fyrir sölustað við Brekkustíg hafi verið hafnað. Húsnæðið hafði staðist allar þær kröfur sem gerðar voru til sölustaða flugelda en á efri hæð hússins væru geymd viðkvæm skjöl sem óttast væri um ef mikill eldur kæmi upp. Því voru góð ráð dýr og því ekki um neitt annað að ræða en að stækka sölustaðinn á Holtsgötu og vonast til að þangað verði straumur fólks að kaupa flugelda þetta árið. Björgunarsveitin Suðurnes hefur undanfarin ár einnig verið með sölustað í söluskúr við Reykjaneshöll. Það var ekki hægt í ár þar sem leiga á aðstöðu var of dýr fyrir björgunarsveitina.
Kári Viðar fer ekki leynt með áhyggjur sínar af því að í Reykjanesbæ fjölgar einkaaðilum ár frá ári sem taka til sín dágóða sneið af þessari mikilvægu fjáröflun björgunarsveitarinnar. Síðustu fjögur kreppuár hafa verið björgunarsveitinni erfið, enda staða margra fyrirtækja þannig að ekki hefur verið mikið aflögufært þegar samtök eins og björgunarsveitirnar eru í fjáröflun. Það hefur því þurft að herða ólina hjá björgunarsveitinni og endurnýjun á búnaði hefur verið slegið á frest í einhverjum tilvikum.
Flugeldamarkaðurinn sem opinn er í fjóra daga fyrir áramót hefur verið að standa undir um 60% af árlegum rekstri Björgunarsveitarinnar Suðurnes. Því sem uppá hefur vantað hefur verið aflað með öðrum hætti og með útsjónarsemi hefur verið hægt að reka björgunarsveitina í Reykjanesbæ.
Starfið hefur ekkert minnkað þrátt fyrir kreppu. Björgunarsveitin Suðurnes hefur eins og svo margar aðrar sveitir tekið þátt í umfangsmiklu starfi þegar náttúruvá hefur verið. Björgunarsveitin Suðurnes og allar hinar björgunarsveitirnar á Suðurnesjum tóku mikinn þátt í björgunarstarfi þegar eldgos urðu á Fimmvörðuhálsi, í Eyjafjallajökli og í Grímsvötnum. Tvö síðast nefndu gosin röskuðu lífi fólks á Suðurlandi og sveitirnar af Suðurnesjum tóku virkan þátt í björgunarstarfinu. Þá var Suðurnes einnig að Fjallabaki sl. sumar þegar þjóðvegur 1 rofnaði þegar brú tók af austan Víkur. Þar aðstoðaði sveitin ferðamenn sem voru mjög misjafnlega útbúnir.
Kári segir að útköll vegna ferðamanna hafi aukist mikið hér á Reykjanesskaganum með auknum ferðamannastraumi. Ferðamenn séu að lenda í vanda um allan skaga.
Á síðustu árum hafa óvenju mörg vond veður hér á Suðurnesjum orðið til þess að björgunarsveitir hafa verið að störfum nótt sem dag við óveðursaðstoð. Nú í desember hafa björgunarsveitirnar á Suðurnesjum fengið tvö úköll á stuttum tíma þar sem lögreglan hefur óskað eftir aðstoð við að leita af týndum einstaklingum. Þá fóru einnig flokkar björgunarsveitarmanna frá Suðurnesjum austur að Litla-Hrauni til að leita af storkufanga.
Áhuginn á björgunarsveitarstarfinu hefur ekkert minnkað og hjá Björgunarsveitinni Suðurnes eru tugir vel þjálfaðra björgunarsveitarmanna- og kvenna. Það hefur hins vegar reynst mörgum erfiðara síðustu misseri að fá sig lausa úr vinnu þegar útköll hafa borist. Þar er um að kenna ótryggu atvinnuástandi. Þá hafa björgunarsveitirnar fengið mörg verkefni sem staðið hafa yfir dögum saman, s.s. í eldgosum síðustu ára.
Á komandi ári ætla björgunarsveitirnar á Suðurnesjum að efla samstarf sitt enn frekar og sagði Kári Viðar að framundan séu spennandi tímar hjá björgunarsveitunum. Starfið byggist þó alfarið á því að fjáröflun til starfsins gangi vel og því sé mikilvægt að íbúar Suðurnesja hugsi til björgunarsveitanna nú þegar keyptir eru flugeldar.