HSS
HSS

Fréttir

Mikill vöxtur hjá Nýfiski
Fimmtudagur 21. október 2004 kl. 11:57

Mikill vöxtur hjá Nýfiski

Mikill vöxtur hefur verið hjá fiskvinnslu fyrirtækinu Nýfiski í Sandgerði undanfarin ár. Um 20% aukning hefur verið á útflutningi fyrirtækisins fyrstu 9 mánuði ársins miðað við árið í fyrra. Fyrirtækið var stofnað í núverandi mynd árið 1996 á stoðum Fisks ehf. sem Birgir Kristinsson og Einar Sveinsson stofnuðu árið 1989. Stefnan var strax í upphafi tekin á að flytja ferskar afurðir til Evrópu með flugi.

Fyrirtækinu hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum og má glöggt sjá það á því að velta fyrirtækisins hefur aukist úr um það bil 150 milljónum 1994 í rúmlega 1,3 milljarða í fyrra. Þá hafa öll umsvif og starfsmannafjöldi verið að vaxa. Um þessar mundir starfa hjá Nýfiski um 70 manns og er fyrirtækið nú stærsti atvinnurekandinn í Sandgerði. Þá er þess ekki langt að bíða að þeir stækki enn við sig því að í næsta mánuði verður tekið í notkun 900 m2 viðbygging. Það gerir Nýfiski kleift að hafa alla sína vinnslu undir einu þaki. Þá er ógetið mikilvægi fyrirtækisins fyrir önnur fyrirtæki á svæðinu þar sem beinaúrgangur fer í vinnslu hjá Skinnfiski og Ífex í Sandgerði og hausarnir fara til Háteigs ehf. í Garði.
Birgir Kristinsson, forstjóri fyrirtækisins, segir gott að geta stutt við atvinnulífið í heimabænum. „Þetta hlýtur að geta fyllt í einhver skörð. Starfsfólkið er til helminga Íslendingar og Pólverjar og fimm Tælendingar en við höfum verið furðu heppnir með að fá Íslendinga til starfa. Fólkið virðist líka vera ánægt í vinnunni því þeir sem koma til okkar stoppa yfirleitt lengi.”

Um 100 vöruflokkar
Nýfiskur býður upp á um 100 mismunandi vöruflokka og hafa sterka tengingu út á markaði í Evrópu í gegnum belgíska dreifingar- og sölufyrirtækið Pieters. Pieters sem er einn stærsti aðilinn á þeim vettvangi er einmitt líka eigandi fjórðungshlutar í Nýfisk.
Undanfarið hefur Nýfiskur verið í miklu kynningarátaki á meginlandinu og hefur orðið mikið ágengt í þeim efnum. „Samvinna okkar við Pieters hefur tryggt okkur þennan uppgang,” segir Birgir. „Svo fengum við þá inn í fyrirtækið árið 2001 til að treysta stöðu okkar enn frekar.”

Í flug samdægurs
Vinnsluferlið hjá Nýfisk, auk nálægðarinnar við Keflavíkurflugvöll, gefur möguleika á að skila vöru í verslanir erlendis með ótrúlegum hraða. Fiskurinn berst í vinnsluhús frá línubátnum Kristni Lárussyni, sem er í eigu Nýfisks, og einnig af mörkuðum og er unninn samdægurs og sendur í flug seinni part dags. Þaðan er honum dreift í verslanir um nóttina og er tilbúinn í borði fisksalanna um morguninn.

5000 tonn af fiski í fyrra
Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og á síðasta ári 2003 fóru í gegnum vinnsluna hjá Nýfiski nær 3.000 tonn af þorski, um 1.000 tonn af karfa og um 900 tonn af steinbít. Samtals tæp 5.000 tonn af fiski.
Það sem af er þessu ári hefur ekkert lát verið á framþróuninni og var 20% aukning á útflutningi fyrstu 9 mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra. Birgir segir að það eina sem standi fyrirtækinu fyrir þrifum í dag sé skortur á kvóta. „Við höfum ekki nógu góða tryggingu fyrir hráefni þar sem við erum of háðir fiski af mörkuðunum. Þetta er eilíf barátta og maður verður að standa sig. En við lítum björtum augum á framtíðina, annars væri maður ekki að standa í þessu.”

Uppgangur og framsókn Nýfisks á erlendum vettvangi er til vitnis um þau tækifæri sem umhverfið hér á Suðurnesjum býður upp á. Allt bölsýnistal um slæmt ástand í þessum málaflokki er því óþarft því það hefur sannað sig að tækifærin eru til staðar fyrir rétta aðila.

Bílakjarninn
Bílakjarninn