Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Mikill viðbúnaður vegna báts sem svaraði ekki kalli
Miðvikudagur 13. maí 2020 kl. 14:00

Mikill viðbúnaður vegna báts sem svaraði ekki kalli

Þyrla Landhelgisgæslunnar, áhöfnin á varðskipinu Tý og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út í hádeginu vegna báts sem datt úr sjálfvirkri tilkynningarskyldu og svaraði ekki kalli stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Þegar merki frá bátnum hætti að berast stjórnstöð Landhelgisgæslunnar var þegar stað hafist handa við að ná sambandi við bátinn auk skipa í grenndinni en án árangurs.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Báturinn var staddur um þrjár sjómílur vestur af Stafnesi þegar síðast var vitað um hann. Einn var um borð. Þegar tilraunir til að komast í samband við bátinn báru engan árangur var ákveðið að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar, áhöfnina á varðskipinu Tý auk sjóbjörgunarsveita frá Sandgerði.

Þyrlan tók á loft frá Reykjavík klukkan 12:20 en skömmu síðar náðist samband við línubátinn Bergvík, sem var í grenndinni, í gegnum farsíma. Þá kom í ljós að báturinn sem saknað var hafði orðið rafmagnslaus og gat ekki komið vél í gang.

Um það leyti sem línubáturinn Bergvík kom að náðist að koma vél bátsins í gang. Hann heldur nú til hafnar í fylgd Bergvíkur. Að auki siglir bátur frá björgunarsveitinni í Sandgerði á móti til að gæta fyllsta öryggis.
 
Landhelgisgæslan leggur ríka áherslu á að sjófarendur sinni hlutvörslu á rás 16 sem getur reynst lífsnauðsynleg í neyð.