Bygg
Bygg

Fréttir

Mikill viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli vegna komu forseta Kína
Fimmtudagur 13. júní 2002 kl. 01:26

Mikill viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli vegna komu forseta Kína

Mikill viðbúnaður er hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli vegna komu forseta Kína, Jiang Zemin, síðdegis í dag, fimmtudag. Sérstök móttökuathöfn mun fara fram á Keflavíkurflugvelli. Mikill öryggisvörður verður af hálfu lögreglunnar og án efa verður allur eftirlitsbúnaður lögreglu og flugvallaryfirvalda nýttur. Þannig er net eftirlitsmyndavéla um allan flugvöllinn og hægt að fylgjast með hverju fótmáli á sjónvarpsskjám hjá lögreglu og öryggisgæslu flugvallarins.Jiang Zemin, forseti Kína, mun dvelja hér á landi fram á sunnudag. Forsetinn mun meðal annars ræða við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra. Forseti Kína og fylgdarlið mun halda af landi brott á sunnudagsmorgun.
Myndin er úr varðstofu lögreglunnar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og er að finna á vefsíðu Lögreglufélags Suðurnesja.
Bílakjarninn
Bílakjarninn