Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mikill munur á kauptilboðum í Kölku
Fimmtudagur 11. mars 2010 kl. 10:49

Mikill munur á kauptilboðum í Kölku


Tvö kauptilboð hafa borist í sorpeyðingarstöðina Kölku og ákvað stjórn hennar í fyrradag að ganga til viðræðna við fyrirtækið Waste Energy Management ehf sem átti hærra tilboðið. Hitt tilboðið var frá Njarðtak. Upphæðir tilboðana fást ekki uppgefnar en samkvæmt áreiðanlegum heimildum VF hljóðaði hærra tilboðið upp á 1,3 milljarða en það lægra upp á 500 milljónir króna. Waste Energy Management ehf er skráð í Reykjavík.

Ólafur Thordersen, forsvarsmaður Njarðtaks, staðfesti í samtali við VF í morgun þá upphæð sem Njarðtak bauð en sagðist ekki hafa heyrt af hinu tilboðinu þar sem það hefði verið trúnaðarmál.
„Ég bauð þessa tölu út frá rekstrarforsendum og tekjumöguleikum stöðvarinnar. Mér finnst mikilvægt að halda þessu fyrirtæki í heimabyggð og reyna að sækja fram í þessu árferði,“ sagði Ólafur.

Ákveðið var í haust að setja Kölku í söluferli en þá hafði Reykjanesbær samþykkt að segja sig úr rekstrarfélagi sveitarfélaganna um stöðina. Málefni Kölku höfðu um tíma verið bitbein milli sveitarfélaganna en bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ lögðu þunga áherslu á að rekstrarformi hennar yrði breytt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024