Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mikill fjöldi umsókna um sölu íbúðarhúsnæðis í Grindavík
Ljósmynd: Golli
Miðvikudagur 27. mars 2024 kl. 13:50

Mikill fjöldi umsókna um sölu íbúðarhúsnæðis í Grindavík

Nú hafa 546 Grindvíkingar óskað eftir því að selja Fasteignafélaginu Þórkötlu ehf. íbúðarhúsnæði sitt. Þrátt fyrir mikinn fjölda umsókna stefnir félagið enn að því að hefja kaupin í byrjun apríl.

Vinna stendur yfir hjá félaginu, Stafrænu Íslandi og sýslumönnum við undirbúning á uppgreiðslu lána, afléttingu kvaða og nauðsynlega skjalagerð. Mörgum fyrirspurnum frá Grindvíkingum hefur verið svarað og unnið er að greiningu og flokkun umsókna, segir í tilkynningu frá fasteignafélaginu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Í ljósi fjölda umsókna og fyrirspurna vill félagið koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri:

Við forgangsröðun kaupanna verður í flestum tilvikum miðað við dagsetningu umsóknar í stafræna umsóknarkerfinu sem sett var upp sérstaklega fyrir verkefnið. Við þá flokkun verður þó tekið tillit til þeirra sem ekki gátu klárað umsókn vegna tæknilegra ágalla fyrstu dagana eftir að opnað var fyrir stafrænar umsóknir, en hafa síðar gengið frá umsókn sinni.

Í tilviki þeirra sem óskað hafa eftir undanþágu frá skilyrði um lögheimili í íbúðarhúsnæði kallar afgreiðslan á sérstaka skoðun á aðstæðum umsækjanda. Komi til þess að félagið telji ekki skilyrði til að fallast á undanþágubeiðnina mun umsækjanda gefast kostur á að andmæla áður en félagið tekur ákvörðun.

Í tilviki húsa í smíðum mun afgreiðslan kalla á sérstaka skoðun á húsbyggingunni af hálfu félagsins. Slík skoðun verður framkvæmd í samráði við eigendur. Stefnt er að því að vinna við þær umsóknir hefjist upp úr miðjum apríl.

Félagið hefur hafið samtal við Búmenn hsf. um lausn mála fyrir búseturéttarhafa. Lögð verður áhersla á að hraða málinu, en ólíklegt er að endanleg lausn fyrir búseturéttarhafa liggi fyrir, fyrr en í maí.

Þrátt fyrir nokkur sérkenni lúta kaup félagsins á íbúðarhúsnæði í Grindavík í öllum meginatriðum sömu reglum og gilda í hefðbundnum fasteignaviðskiptum. Félagið hefur einsett sér að eiga gott samstarf við núverandi eigendur íbúðarhúsnæðis við framkvæmd kaupanna. Ætlunin er að koma til móts við óskir eigenda um leigu eða eftir atvikum önnur afnot og/eða aðgengi að hinu selda húsnæði. Unnt verður að semja um slíkt fyrir afhendingu eða síðar. Unnið er að útfærslu á fyrirkomulagi leigu og öðrum skilmálum og verður upplýst um þau atriði í byrjun apríl.

Í reglugerð um framkvæmd kaupanna segir að afhendingardagur húsnæðis skuli vera 1 – 3 mánuðum eftir undirritun kaupsamninga. Þannig má reikna með að fyrstu eignirnar verði afhentar fasteignafélaginu í byrjun maí. Endanlegur afhendingardagur verður ákveðinn í samráði við seljendur.