Bygg
Bygg

Fréttir

Mikill árangur síðan PISA-rannsókn var gerð
Sunnudagur 8. desember 2013 kl. 13:22

Mikill árangur síðan PISA-rannsókn var gerð

PISA-rannsóknir eru gerðar á þriggja ára fresti og eru annar mælikvarði mælikvarði á námsárangur en samræmd próf sem tekin eru í 4., 7. og 10. bekk. PISA-rannsóknin sem birt var í vikunni tekur til allra sveitarfélaganna á svæðinu en skólarnir í Grindavík og Vogum heyra ekki undir fræðsluskrifstofuna í Reykjanesbæ. Þar kemur fram að Suðurnes standi áberandi verst að vígi allra landshluta hvað varðar læsi og lesskilning grunnskólabarna. Hlutfallslega flestir nemendur á Suðurnesjum eru á eða undir þrepi 1 í lesskilningi. Þegar kemur að stærðfræðilæsi mælast u.þ.b. 40% nemenda á Suðurnesjum á þrepi 1 og undir; það þýðir að þeir geta ekki nýtt sér tölur og stærðfræði til gagns.

Náttúrufræðilæsi var einnig mælt í þessari PISA-könnun og þar eru Suðurnesin einnig frábrugðin öðrum landshlutum, með miklu fleiri nemendur undir neðsta þrepi, sem endurspeglar litla sem enga kunnáttu á því sviði, samkvæmt skýrslunni.

Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri í Reykjanesbæ  segir í samtali við Víkurfréttir að niðurstöður fyrir Suðurnes séu algerlega óásættanlegar. Þess vegna hafi verið gripið til aðgerða strax.

„Þessi nemendahópur sem kemur svona illa út, tók PISA í mars 2012 og samræmd próf haustið 2011. Áhrifa nýrrar aðferðafræði í Reykjanesbæ, Sandgerði og Garði er því ekki farið að gæta nema í mjög takmörkuðum mæli. Ein túlkun á þessum niðurstöðum PISA er að þetta er sá núllpunktur sem við gengum út frá þegar við bjuggum til sameiginlega framtíðarsýn. Ástandið var afar slæmt, við urðum að breyta. Sameiginleg framtíðarsýn okkar varð ekki til út í bláinn, hún er viðbragð við ástandi sem var algerlega óviðunandi og það endurspegla niðurstöður PISA mjög vel.

Nú erum við á hraðri siglingu upp á við og eins og niðurstöður nemenda okkar á samræmdum prófum í ár sýna. Þeir nemendur tóku ekki PISA og þess vegna er ekkert ósamræmi í því að við séum að ná árangri nú en komum illa út á PISA sem lagt  var fyrir vorið 2012.

Þetta sagt held ég að við höfum ákveðið forskot á aðra á Íslandi sem ætla að bregðast við þessum slæmu niðurstöðum. Hinni sameiginlegu aðferðafræði sem við erum að vinna eftir í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði, er einfaldlega ætlað að bæta árangur nemenda. Ég er þess fullviss að  útkoma hér verður með allt öðrum hætti þegar við fáum niðurstöður PISA 2015 í hendurnar. Tökum höndum saman og vinnum markvisst að því.

Umræðan um slakan árangur á Suðurnesjum á PISA kemur eins og köld vatnsgusa framan í okkur eftir jákvæða umræðu um skólastarf okkar undanfarna mánuði. Minni á að svona var eiginlega alltaf rætt um árangur okkar áður en við fórum að starfa eftir sameiginlegri hugmyndafræði í góðri samvinnu alls skólasamfélagsins, kennara, foreldra og nemenda. Slakur árangur leiðir af sér neikvæða umræðu, jákvæður árangur skapar jákvætt umtal, svo einfalt er það,“ segir Gylfi Jón.

Niðurstöður PISA verða ræddar á fundi skólastjóra í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði strax í fyrramálið og þar verður rætt til hvaða frekari aðgerða sé hægt að grípa til. Aftur verður fundað í næstu viku með sérfræðingum PISA til að greina niðurstöður enn betur.

„Hægt er að nýta slæmar niðurstöður til að bæta skólastarf með því að greina þær vel og grípa að því búnu til markvissra aðgerða og það mun skólasamfélagið svo sannarlega gera,“ sagði Gylfi Jón að lokum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn