Mikill áhugi og möguleikar í flugvirkjun
- 28 pláss í boði hjá Keili. Yfir 100 umsækjendur í fyrra.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í flugvirkjanám AST hjá Keili sem hefst í lok ágúst 2014. Fyrst var boðið upp á flugvirkjanámið haustið 2013 og bárust vel yfir hundrað umsóknir um þau 28 pláss sem voru í boði. Það er því ljóst að mikill áhugi er meðal Íslendinga að sækja flugvirkjanám, enda er mikill skortur á flugvirkjum í heiminum. Keilir og AST vilja benda á að nám og starf í flugvirkjun hentar jafnt konum sem körlum og því hvetjum við konur sérstaklega til að skoða þennan möguleika í framtíðinni.
Atvinnugrein í örum vexti
Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri ITS var í viðtali í Morgunblaðinu á dögunum, en þar var meðal annars fjallað um umsvif viðgerðar- og viðhaldsstöðvar þeirra á Keflavíkurflugvelli. Alls starfa um 320 manns hjá fyrirtækinu og eru um helmingur starfsmanna flugvirkjar.
„Síðustu misserin hefur verið talsverð hreyfing á fólki og nokkrir af eldri starfsmönnum okkar farið á eftirlaun. Í staðinn hefur komið inn fínn mannskapur, til dæmis strákar sem í kringum aldamótin fóru til Tulsa í Oklahoma í Bandaríkjum og tóku flugvirkjanámið,“ segir Jens. Í huga ungs fólks er flugið gjarnan sveipað ævintýraljóma, margir fara í flugnám eða leggja fyrir sig tengdar greinar svo sem flugvirkjun. Í dag eru á annað hundrað manns að læra flugvirkjun, þar á meðal hjá Keili á Ásbrú, sem gefur til kynna að flugið er áhugaverð atvinnugrein í örum vexti.
Samstarf AST og Flugakademíu Keilis
Air Service Training ltd. (AST) í samstarfi við Keili hefur sett upp útibú frá skóla sínum í Perth í Skotlandi hjá Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ. Í skólanum fer fram réttindanám flugvirkja og er um að ræða fimm anna samþykkt nám fyrir flugvirkja „Approved IR Part 66 Category B“ sem er bóklegt og verklegt iðnnám flugvirkja. Námið tekur mið af námsskrá sem gefin er út af EASA samkvæmt samevrópski útgáfu skírteina og sér AST um framkvæmd og ber faglega ábyrgð á gæðum námsins. Þeir sem ljúka flugvirkjanámi hjá AST öðlast öll þau réttindi sem EASA 145 viðhaldsfyrirtæki krefjast við ráðningu flugvirkja fyrir nútíma flugvélar.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Flugakademíu Keilis í netfang þeirra hér. Einnig má nálgast upplýsingar um námið á heimasíðu Flugakademíunnar.