Mikil umskipti í atvinnlífinu
Flestir geta fengið vinnu sem vilja – segir formaður VSFK
Mikil umskipti hafa orðið í atvinnulífinu á Suðurnesjum frá því í vor þegar atvinnuleysi var um 25%. Nú mælist það rúmlega 10%. „Það virðast lang flestir geta fengið vinnu sem vilja það,“ segir Guðbjörg Kristmannsdóttir, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis.
Formaðurinn segir að það sé þó svolítið ójafnvægi á vinnumarkaðinum. Margir sem misstu vinnuna vegna Covid-19 hafi beðið eftir því að komast í sama starf en það hefur ekki alltaf gengið eftir. Sumir hafi þó fengið slíkt boð eftir að hafa farið í annað starf og því viljað vilja fara aftur í fyrri vinnu.
„Þannig að þetta hefur verið pínu skrýtið ástand stundum og svo eru margir atvinnurekendur sem hafa kvartað yfir því að fá ekki fólk í vinnu þó vitað sé að margir séu enn á atvinnuleysisskrá. Svo eru önnur dæmi þar sem okkar félagsmenn hafa kvartað yfir því að fyrirtæki hafi ekki svarað atvinnuumsóknum,“ segir Guðbjörg.
Þegar losnaði um höft vegna heimsfaraldurs í vor fór atvinnulífið í gang að nýju og hraðar en margir höfðu spáð. Mörg fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa notið góðs af auknum fjölda ferðamanna til Íslands, t.d. bílaleigur, hótel, veitingastaðir og fleiri aðilar. Margar bílaleigur hafa ekki getað annað eftirspurn þar sem þær áttu ekki nógu marga bíla og hafa þess vegna getað selt á miklu hærra verði. Leigubílsstjóri á Suðurnesjum sem keyrir mikið frá flugstöðinni segir að júlí hafi verið stærri hjá sér en nokkru sinni fyrr.
Guðbjörg Kristmannsdóttir segir að flest bendi til að leiðin liggi áfram upp á við þrátt fyrir enn ríki nokkur óvissa í Covid-19, sérstaklega hvernig ferðaþjónustunni reiði af í haust og vetur. Nokkur bjartsýni ríki þó, þar sem viðhorf gagnvart heimsfaraldri hafi verið að breytast í það að reyna að lifa með veirunni.
Alls voru 1.309, eða 11,6% vinnumarkaðar í Reykjanesbæ, atvinnulaus í lok júlímánaðar. Rúmlega helmingur þess hóps er fólk með erlent ríkisfang