Mikil rigning á morgun

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðaustan 15-23 m/s með talsverðri rigningu og jafnvel slyddu fyrir norðan. Mun hægari suðlæg eða breytileg átt á Suður- og Austurlandi fram eftir degi. Kólnandi veður og hiti 3 til 8 stig undir kvöld.
Á föstudag:
Ákveðin norðanátt og él á Norður- og Austurlandi, en hægari og léttskýjað sunnan- og vestanlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst, en víða næturfrost.
Á laugardag:
Norðlæg átt og él norðaustanlands. Austlæg átt í öðrum landshlutum og skýjað með köflum, en stöku skúrir við suðurströndina. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag og mánudag:
Norðlæg átt og él fyrir norðan, en yfirleitt þurrt og bjart sunnan- og vestanlands. Fremur kalt.