Fimmtudagur 2. nóvember 2017 kl. 11:18
Mikil fólksfjölgun í Reykjanesbæ
- Útsvarstekjurnar 22% hærri í ár
Á fyrstu níu mánuðum ársins voru útsvarstekjur Reykjanesbæjar 22% hærri en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á vef Rúv. Útsvarstekjur í Reykjanesbæ hækkað mest á landinu og hefur íbúaþróun áhrif á útsvarstekjurnar en mikil fólksfjölgun hefur átt sér stað í sveitarfélaginu undanfarna mánuði.