Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mikil fjölgun íbúa áskorun fyrir Reykjanesbæ
Laugardagur 25. mars 2017 kl. 06:00

Mikil fjölgun íbúa áskorun fyrir Reykjanesbæ

Skuldaviðmið Reykjanesbæjar undir 150% árið 2022. Endurfjármögnun skulda Reykjaneshafnar skilar mikilli hagræðingu.

Mikil fjölgun íbúa gæti orðið erfiðasta verkefnið hjá bæjarstjórnum Reykjanesbæjar næsta áratuginn. Fjölgunin undanfarin ár hefur samt haft góð áhrif á rekstur bæjarins sem hefur batnað mikið. Vinna við endurskipulagningu fjármála undir nafninu „Sóknin“ sem staðið hefur yfir frá því ný bæjarstjórn tók við árið 2014, hefur tekið á en nú sér fyrir endann á henni. Samkvæmt aðlögunaráætlun bæjarfélagsins til ársins 2022 mun skuldaviðmið samstæðu Reykjanesbæjar verða 149% í lok tímabilsins en þarf samkvæmt lögum að vera undir 150%. Með margvíslegum aðgerðum sem unnið hefur verið að á þetta markmið að nást á árinu 2022. Góð sátt er í bæjarstjórn um aðlögunaráætlunina sem kynnt var á bæjarstjórnarfundi síðasta þriðjudag.

Aðlögunaráætlunin er, til viðbótar þeim forsendum sem er að finna í áætluninni sjálfri, bundin þeirri forsendu að samkomulag um endurskipulagningu efnahags og endurfjármögnun skulda Reykjanesbæjar og samstæðu takist en viðræður við kröfuhafa standa enn yfir. Í aðlögunaráætluninni sem gildir til ársins 2022 er gert ráð fyrir rekstrarafgangi öll árin sem nemur samtals um milljarði króna á tímabilinu. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri segir að viðræður við kröfuhafa hafi skilað viðunandi árangri í lækkun skulda þó leiðirnar að markmiðinu hafi á endanum orðið aðrar en lagt hafi verið upp með í byrjun.

Meðal stórra atriða í áætluninni má nefna endurfjármögnun skulda Reykjaneshafnar sem mun skila 1,3 milljarði í hagræðingu, mikilli aukningu tekna, aðallega vegna íbúafjölgunar en gert er ráð fyrir 2,5% fjölgun árlega en landsmeðaltalið er 1,1%. Íbúar Reykjanesbæjar munu verða tæp 19 þúsund í árslok 2022 miðað við þá spá. Mesta óvissan í áætluninni snýr einnig að fjölgun íbúa. Verði hún meiri er ljóst að frekari fjárfestinga er þörf, m.a. í byggingu fleiri skóla. Það gæti haft neikvæð áhrif á skuldaþáttinn tímabundið.
Eftir árið 2021 er gert ráð fyrir verulegum tekjum af Reykjaneshöfn þegar verksmiðjur verða komnar í góðan gang. Arður af rekstri HS Veitna mun skila árlega um 250 milljónum króna til bæjarins. Áfram er gert ráð fyrir aðhaldi í almennum rekstri sveitarfélagsins en útsvar mun aftur lækka á árinu 2018 í 14,52%. Ekki er gert ráð fyrir að fasteignaskattur, sem var hækkaður við upphaf „Sóknarinnar“, lækki aftur. Miklar eignir og fjárfestingar undanfarinna ára skila jákvæðum þáttum í áætluninni, ekki hefur þurft að fara í fjárfestingar á innviðum en gert er ráð fyrir fjárfestingum upp á rúma 5 milljarða króna á tímabilinu, þar af 3,5 milljörðum til fræðslumála.

Fyrir utan Reykjaneshöfn hefur skuldavandi Reykjanesbæjar aðallega tengst Eignarhaldsfélaginu Fasteign en gert er ráð fyrir því að í endurskipulagningu þess verði því skipt upp í tvö félög: EFF1 mun halda utan um þær eignir sem tengjast grunnþjónustu sveitarfélagsins og EFF2 sem heldur á eignum sem eru ekki hluti af grunnþjónustu. Þar er gert ráð fyrir sölu á nokkrum stærri eignum eins og Víkingaheimum, Hljómahöll, golfskála GS og húsnæði fyrrverandi íþróttaakademíu. Sala þeirra mun lækka skuldir bæjarins.

Þá er gert ráð fyrir að Fasteignir Reykjanesbæjar ehf. (FR), sem nú er hluti af samstæðu Reykjanesbæjar, verði færðar til húsnæðissjálfseignarstofnunar á grundvelli nýrra laga um almennar íbúðir sem sett voru í maí 2016. Heildarskuldbindingar eru áætlaðar um 2,6 milljarðar króna í árslok 2016 og munu þær færast út fyrir samstæðu Reykjanesbæjar á árinu 2017. Markmiðið er að búa til rekstrarhæfa húsnæðissjálfseignarstofnun og leggja grunn að nýju húsnæðiskerfi í Reykjanesbæ í anda nýrra laga um almennar íbúðir.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024