Bygg
Bygg

Fréttir

Mikil fækkun umferðarlagabrota
Föstudagur 20. nóvember 2009 kl. 12:53

Mikil fækkun umferðarlagabrota


Umferðarlagabrotum á Suðurnesjum fækkaði stórlega á milli ára í október, samkvæmt samantekt Ríkislögreglustjóra. Þau voru 309 í október í fyrra og hafði þá fækkað úr 366 frá sama mánuði árinu áður. Í október síðastliðnum voru þau 90 talsins þannig að um gríðarlega fækkun er að ræða. Ljóst er að hraðamyndavélar þær sem settar voru upp á Garðvegi og Sandgerðisvegi hafa haft þau áhrif að ökumenn eru farnir að gæta sín betur.

Hegningarlagabrot í umdæmi Suðurnesjalögreglu í október voru nánst jafnmörg á milli ára eða 86 nú á móti 87 í október 2008. Fjöldi fíkniefnabrota var jafnmikill milli ára eða 13 talsins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn