Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mikil fækkun innbrota á Suðurnesjum
Þriðjudagur 17. september 2013 kl. 09:10

Mikil fækkun innbrota á Suðurnesjum

Það sem af er ári hafa 42 innbrot verið skráð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, samkvæmt bráðabirgðatölum embættisins. Á sama tímabili á síðasta ári höfðu 71 innbrot verið skráð. Er því um að ræða rúmlega 40 prósenta fækkun brota af þessu tagi milli árshluta. Alls voru á síðasta ári  skráð 98 innbrot.

Þess má geta að lögreglan á Suðurnesjum hélt úti sérstöku eftirliti á síðasta ári, til að sporna gegn innbrotum og nágrannavarsla var tekin upp víða í götum og hverfum. Síðast en ekki síst tókst að hafa hendur í hári brotamanna sem hafa farið í afplánun dóma eða flust brott úr umdæminu í kjölfarið. Allt á þetta væntanlega sinn þátt í þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í þessum málaflokki á Suðurnesjum.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024