Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mikil ásókn í fjarnám Háskólabrúar
Miðvikudagur 18. desember 2013 kl. 10:10

Mikil ásókn í fjarnám Háskólabrúar

Líkt og undanfarin ár hefur mikill fjöldi umsókna borist í fjarnám Háskólabrúar Keilis fyrir vorönn 2014, en árlega eru innritaðir yfir hundarð nýnemar.

Verið er að vinna úr umsóknum og verður að haft samband við alla umsækjendur fyrir miðja næstu viku. Umsóknarfrestur um fjarnám í Háskólabrú er liðinn, en tekið er við umsóknum á biðlista fram til 30. desember.

Á Háskólabrú Keilis er boðið upp á nám fyrir einstaklinga sem ekki hafa lokið stúdentsprófi og eru teknir inn nemendur tvisvar á ári, í staðnám á haustin og fjarnám í byrjun ársins. Að loknu námi uppfylla nemendur inntökuskilyrði í háskóla og telst námið sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis og Háskóla Íslands.

Meirihluti þeirra nemenda sem sækja aðfaranám að háskólanámi á Íslandi hafa undanfarin ár valið að stunda nám sitt í Háskólabrú Keilis. Skólinn hefur þannig náð að skipa sér sess sem öflug menntastofnun, þar sem kennsluhættir leggja áherslu á þarfir fullorðinna nemenda og persónulega þjónustu. Keilir er í fararbroddi varðandi kennslutækni í fjarnámi, sem hentar þeim sem að vilja nýta sér nýjustu tækni í kennslu og haga námstímanum eftir sinni eigin þörf.

Um þúsund einstaklingar hafa útskrifast úr Háskólabrú Keilis síðan skólinn hóf starfsemi og hafa langflestir þeirra valið að halda áfram í námi. Brautskráðir nemendur Háskólabrúar stunda nú nám á flestum sviðum Háskóla Íslands, auk fjölda annarra háskóla bæði hérlendis og erlendis, auk þess sem margir velja að vera áfram hjá Keili og leggja stund á BS nám í tæknifræði.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024