Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mikið um innbrot í Reykjanesbæ
Fimmtudagur 1. mars 2012 kl. 11:42

Mikið um innbrot í Reykjanesbæ



Lögreglan á Suðurnesjum staðfesti í samtali við Víkurfréttir að þessa dagana væri töluvert um innbrot í Reykjanesbæ. Bæði væri verið að brjótast inn í heimahús víða í bænum og eins er talsvert um það að farið sé inn í bíla. Vildi lögreglan af því tilefni brýna fyrir fólki að huga vel að heimilum sínum og tryggja það að skilja ekki eftir opna glugga og læsa hurðum. Svo virðist sem að þjófarnir, en ekki liggur fyrir hve margir þjófar eru á ferð, eða hverjir séu að verki, brjótist inn á öllum tímum sólarhringsins og eru dæmi um að þeir komi inn um hábjartan daginn jafnt sem á nóttunni.

Guðmundur Sigurðsson hjá rannsóknarlögreglunni segir að ekki séu bein tengsl milli innbrota í bíla og inn á heimili fólks. Hann sagði að það væri meira um innbrot í heimahús og augljóslega eitthvað sem er að freista innbrotsþjófa þessa stundina. Hann hvetur fólk því til að huga vel að öllum forvörnum og í hvert skipti sem heimilið sé yfirgefið þá eigi helst að læsa öllum gluggum og hurðum. Verðmæti í bílum skal helst geyma í farangursgeymslu eða færa hluti úr augsýn.

Fyrir skömmu var m.a. brotist inn á heimili í Reykjanesbæ þar sem stolið var fartölvu, Playstation-tölvu, karlmannsarmbandsúri og farsíma. Það mál er enn óupplýst. Þann sama dag var brotist inn á bílaleigu hér á svæðinu en sá þjófur náðist í Reykjavík skömmu síðar. Svo í síðustu viku voru þrír aðilar handteknir í Innri-Njarðvík eftir að þeir höfðu látið greipar sópa í heimahúsi. Höfðu þjófarnir á brott með sér hvorki meira né minna en þvottavél og þurrkara sem þeir báru einfaldlega á milli húsa. Til þeirra sást í flutningunum og í framhaldi voru þeir handteknir. Einnig var brotist inn í einbýlishús bæði í Njarðvík og Keflavík sama daginn og m.a. stolið þaðan fartölvum.

Lögreglumaður á frívakt kom að tveimur innbrotsþjófum í síðustu viku sem voru að skríða inn um glugga í Innri-Njarðvíkurhverfi og honum tókst að hafa hendur í hári þeirra. Þjófarnir höfðu þar m.a. fartölvu og úr upp úr krafsinu en þeir munir hafa verið endurheimtir. Einn af þeim þjófum var viðloðinn annað innbrot sem taldist upplýst. En þó eru ekki öll málin sem hafa verið að koma upp að undanförnu upplýst og lögregla vinnur hörðum höndum að því að leysa málin.

Lögreglan hafði fyrir skömmu afskipti af ökumanni seint að kvöldi til en háttalag mannsins þótti lögreglunni grunsamlegt. Fékkst leyfi til leitar í bíl mannsins og þar fannst verkfæri sem notað hafði verið við innbrot í FS fyrir einhverju síðan. Það leiddi lögregluna á slóð sem varð til þess að við húsleit hjá viðkomandi aðila fundust munir úr fleiri innbrotum. Það mál er enn í rannsókn.

Auk þess ber að taka það fram að tölva, sem stolið var í innbroti í Fjölskylduhjálp Suðurnesja um síðastliðin jól, er nú komin í leitirnar en lögregla fékk ábendingu um mann sem hafði tölvuna í sinni vörslu. Maðurinn sagðist ekki vita hver hefði látið honum hana í té en sagðist hafa keypt hana.

Mynd: Lögregla hvetur fólk til að læsa vel og huga að verðmætum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024