Mikið magn amfetamíns og lyfja haldlagt
- Efnið fannst við tvær húsleitir
Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á mikið magn af lyfseðilsskyldum lyfjum og amfetamíni síðasta föstudag. Efnin fundust við húsleitir á tveimur stöðum. Í öðru húsnæðinu fundust amfetamín og íblöndunarefni, vog, umtalsverð fjárhæð og skuldalistar. Talið er að þessir munir séu til fíkniefnasölu og lagði lögreglan því hald á þá. Í hinu húsnæðinu fannst taska með miklu magni lyfja og krukka með hvítu efni, sem talið er vera amfetamín.
Annar húsráðenda viðurkenndi eign sína á hluta amfetamínsins og öllum lyfjunum, en þvertók fyrir sölu og dreifingu.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.