Bygg
Bygg

Fréttir

Mikið fjölmenni á Styrktartónleikum fyrir Bryndísi Evu
Föstudagur 3. febrúar 2006 kl. 12:22

Mikið fjölmenni á Styrktartónleikum fyrir Bryndísi Evu

Mikð fjölmenni sýndi stuðning sinn í verki á styrktartónleikum fyrir Bryndísi Evu á Ránni í gær og var húsið fullt út úr dyrum.

Vinir og vandamenn Bergþóru Ólöfu Björnsdóttur og Hjörleifs Jóhannssonar, foreldrum Bryndísar Evu, stóðu fyrir tónleikunum, en Bryndís er tæplega níu mánaða og hefur legið á Barnaspítala Hringsins án meðvitundar síðan 5. desember.

Á tónleikunum gafst öllum kostur á að styrkja þau í baráttunni og hlýða á góða tónlist í kaupbæti. Aðstandendur tónleikanna hvetja alla til að senda Bryndísi Evu og foreldrum hennar styrk, kærleika og orku og minna á heimasíðuna þeirra. www.bebbaoghjolli.blogspot.com.

Fram komu þau Hanna Björg, Hlynur Vals, Matti Óla, Óli Þór, Rúnar Júlíusson, Svavar Knútur og Tabula Rasa.

Styrktarreikningur Bryndísar Evu er í Sparisjóðnum í Keflavík : 1109-05-410900 og kennitalan er 290681-5889.

VF-mynd/Þorgils: Fleiri myndir eru væntanlegar á vf.is síðar í dag.
Bílakjarninn
Bílakjarninn