Mikið annríki hjá BS

Að sögn Sigmundar Eyþórssonar, slökkviliðsstjóra, var að mestu um að ræða sjúkraflutninga vegna slysa og veikinda, og gerðist það tvisvar að tveir sjúkrabílar voru úti í einu. Tvö umferðaróhöpp urðu í umdæmi þeirra á umræddum tíma.
Þrír menn eru á fastavakt, en fleiri voru kallaðir út vegna annríkisins. Sigmundur bætti því við að fjölmargir toppar sem þessir hefðu komið upp að undanförnu, en nú væri unnið að greiningu á því hvort mætti sjá slíkt fyrir.