Miðvikudagsútgáfa hjá Víkurfréttum í apríl
	Víkurfréttir koma út í dag, miðvikudag. Í næstu viku kemur blaðið einnig út á miðvikudegi en þá ber sumardaginn fyrsta upp á fimmtudag. Þá munu Víkurfréttir einnig koma út miðvikudaginn 30. apríl en 1. maí ber upp á fimmtudag í þeirri viku.
	Auglýsendur eru hvattir til að vera tímanlega með auglýsingar en skilafrestur fyrir hvert tölublað er á þriðjudegi í útgáfuviku. 
	Auglýsingasíminn er 421 0001 og póstfangið: [email protected]. 
				
	
				
 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				