Miðársmannfjöldi svipaður
Miðársmannfjöldi helst nokkuð svipaður á milli ára á Suðurnesjum, er 0,1 prósenti meiri en á síðasta ári.
Þann 1. apríl voru 20,245 einstaklingar skráðir með búsetu í byggðalögum Suðurnesja en voru 20,167 á sama tíma 2008, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands.
Á töflunni hér að neðan má sjá skiptinguna milli sveitarfélaga á Suðurnesjum milli ára.