Metfjöldi farþega á Keflavíkurflugvelli í fyrra
– Mikil aukning fjórða árið í röð
18,5 % aukningu spáð á næsta ári – 7,7% umferðaraukning í íslenska flugstjórnarsvæðinu
Árið 2013 var enn eitt metárið í umferð á Keflavíkurflugvelli. Alls fóru 2.751.743 farþegar um flugvöllinn á árinu eða 15,6% fleiri en árið 2012 sem einnig var metár með 12,7% heildaraukningu. Desember var stærsti jólamánuðurinn til þessa á Keflavíkurflugvelli með 30,1% farþegaaukningu milli ára.
Farþegar á leið til og frá landinu voru alls 2.281.968 árið 2013 sem er 14,8% aukning frá árinu á undan og skiptifarþegar, sem hafa viðdvöl á flugvellinum á leið milli Evrópu og Ameríku, voru alls 469.775 sem er 19,66% aukning.
Útlit er fyrir að farþegum um Keflavíkurflugvöll muni enn fjölga um 18,5% á þessu ári og eru umtalsverðar endurbætur ráðgerðar á Flugstöð Leifs Eiríkssonar til þess að auka afkastagetu og þægindi flugfarþega.
7,7% aukning á flugstjórnarsvæðinu
Nýtt met var einnig slegið í fjölda flugvéla sem fóru um íslenska flugstjórnarsvæðið á liðnu ári. Alls flugu 116.326 flugvélar um svæðið og er það 7,7% aukning frá fyrra ári. Fjölgunina má rekja til aukinnar flugumferðar á leiðum yfir Atlantshaf og Norðurheimskaut ásamt legu háloftavinda sem nýtast flugumferð.
Íslenska flugstjórnarsvæðið er um 5,4 milljónir ferkílómetra að stærð og eitt hið stærsta í heimi. Það nær frá Norðurpól, suður fyrir Ísland, yfir Grænland og austur undir Svalbarða og Noreg og er af svipaðri stærð og allur landmassi Evrópu utan Rússlands. Isavia veitir flugleiðsöguþjónustu innan svæðisins frá flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík og fjarskiptastöðinni í Gufunesi.
Árangursríkt markaðsstarf
Isavia og aðrir ferðaþjónustuaðilar halda uppi öflugu markaðsstarfi og landkynningu sem skilað hefur miklum árangri með umtalsvert aukinn ferðatíðni og fjölgun flugfélaga á Keflavíkurflugvelli. Isavia leggur áherslu á aukna ferðatíðni allt árið og bætta nýtingu flugvallarmannvirkja utan háannatíma. Mikill vöxtur sem orðið hefur yfir vetrarmánuðina fellur vel að markmiðum félagsins.