Metanólverksmiðja í Svartsengi fær starfsleyfi
Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir Carbon Recycling International ehf. og fyrirtækinu þar með heimilað að reka verksmiðju í Svartsengi þar sem tilraun er gerð til að framleiða metanól úr koldíoxíði.
Umhverfisstofnun auglýsti tillögu að starfsleyfi fyrir verksmiðjuna á tímabilinu 23. október til og með 18. desember 2009 og bárust tvær athugasemdir.
Athugasemdirnar höfðu talsverð áhrif á skilyrði starfsleyfisins. Skipulagsstofnun benti á að hún hefði hefði fengið tilkynningu um að verksmiðjan væri tilraunaverksmiðja í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum og að það hefði þær afleiðingar að Umhverfisstofnun mætti ekki leyfa framleiðslu metanóls lengur en í tvö ár án þess að fram færi mat á umhverfisáhrifum. Umhverfisstofnun féllst á þessa athugasemd. Þá kom fram í athugasemd Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja að rétt væri að gera frekari kröfur um hreinsum fráveitu og féllst Umhverfisstofnun einnig á þetta sjónarmið. Loks voru felldar út greinar sem ekki er þörf á vegna þess að gildistími hefur verið styttur frá auglýstum texta. Starfsleyfið öðlast þegar gildi og gildir til 1.febrúar 2018.
Þetta kemur fram í frétt á vef Umhverfisstofnunar.
--
VFmynd/elg - Frá Svartsengi.